Breytingum á A-2 fagnað

Í síðustu viku var haldið upp á  breytingar sem gerðar hafa verið á annari hæð í austurhúsi Grundar, Þar eru nú komin sex ný einbýli með sér baðherbergjum og búið að rýmka í setustofu og á gangi. Frábærar breytingar sem miða að sjálfsögðu að því að betur fari um heimilismennina.